|
Ég hugsa, þess vegna er ég. |
|
Blogg8.3.2010Allt fer þetta í hringi..þetta gæti passað við ástandið á Íslandi þessa dagana þó að þetta hafi verið skrifað fyrir 40 árum.... Ef varnarlaus smáþjóð hefur mitt í sinni ógæfu borið gæfu til að eignast mátulega sterkan óvin, mun tíminn ganga í lið með henni eins og því dýri sem ég tók dæmi af. Ef hún í neyð sinni játast undir tröllsvernd mun hún verða gleypt í einum munnbita....... Feitur þjónn er ekki mikill maður. Barður þræll er mikill maður, því í hans brjósti á frelsið heima." Halldór Laxness. 28.2.2010Lífið er lag...Við erum búin að eiga alveg yndislega helgi og fína viku. Skólinn alltaf jafn skemmtilegur, fékk 10 fyrir ritgerð um Barbizon skólann, og 10 fyrir próf úr sögunum Norðan við Stríð og 79 af stöðinni. Ég fékk 8 fyrir próf úr Land og synir en ég hækka eitthvað þar því að rétt svar við einni spurningu var eitthvað loðið. Við erum að klára að lita efni og garn þessa vikuna og erum að byrja að læra að þrykkja efni í næstu viku. þæfingin á líka að vera búin en ég er aðeins á eftir þar.... Myndlistarsagan sem mér fannst svo óskiljanlega erfið á síðustu önn er bara óskaplega skemmtileg þegar maður er í dagskóla! Máney er byrjuð að æfa körfubolta núna, svo hún er þá í leiklistinni, dansinum og körfubolta.. ekki mikill tími til að láta sér leiðast Brimar æfir tölvuhandbrögðin af miklum krafti og stendur sig vel þar. Ísar er að pússla pússl núna sem er gert fyrir 9+ og er með 500 kubba, honum gengur það alveg bærilega drengnum, og svo er það Dögun Líf horkerling, hún er... með hor. Dansar og dillar sér, pirrar sig á dótinu sínu stundum, en er fljót að leyfa mér að sjá frekjuskarðið aftur. Þessi helgi er auðvitað hrikalega fljót að líða eins og venjulega. Ég bakaði köku sem hvarf stuttu síðar... Dundaði mér í textílmöppunni minni og kartoneraði nokkur efni, Fékk fólk í heimsókn, og svo heppilega vildi til að maðurinn kann á pípulagnir, og konan lánaði mér 3 mánaða guttann sinn á meðan hún skaust í ljós. Nú er Davíð byrjaður að kenna á fullu, og gengur held ég bara vel, allavega síðast þegar ég spurði :) hann er í loftinu núna, og ég er heima á náttfötunum að dúllast með litlu krílunum. Dögun er líklega með hita svo ég vil ekki fara mikið út, en Ísar er alveg að verða vitlaus, hann langar út en nennir ekki einn, Brimar er upptekinn í tölvunni með vinum sínum, og ég kemst ekki út frá Dögun. En við eigum eftir að gera eitthvað sniðugt við restina af deginum. Pabbi kom í hádegismat og tók nokkur vel valin lög á gítarinn á meðan hann beið eftir nautakjötinu á borðið, óskaplega finnst mér það notalegt að hafa svona "live dinner tónlist" Annars bara góð, og fín, og ánægð með lífið. Vona að þú sért það líka :) 27.2.2010hjálpum hvert öðru..Af einskærri góðmennsku minni ætla ég að pósta inn vefpósti sem ég fékk, í von um að einhver vilji aðstoða greyið manneskjuna... Halló, Góður dagur, ég sakna Sarah Thomas, from Abidjan Cote d'Ivoire, Ég óska eftir að beiðni um aðstoð þína í áætlunum fjárfestingu mína í grunn þinn, ÉG vilja til að fjárfesta í framleiðslu og fasteignir stjórnun í grunn þinn, þetta er vegna þess að ég arf mikilvægt er frá seint í föður mínum Höfðingi Steve Thmas. sem var eitur af félagi hans viðskipti í einni af outings þeirra til discuse um viðskipti. Fyrir dauða föður mínum, gaf hann mér öll nauðsynleg lagaleg skjöl um afhendingu sjóðsins í bankanum, sem hann hefur vistað alger summa ($ 3,5) þrír million fimm hundred thousand Bandaríkin dollari aðeins í einn af banki hér í Fílabeinsströndin, var þetta fé verið afhent fyrir félagslegu öryggi mínu og ber ávöxt erlenda, ábendingar þínar og hugmyndir munu vera mjög litið. Nú leyfi mér að spyrja þessa nokkurra spurninga: 1. Getið þið hjálpað heiðarlega mér af hjarta þínu? 2. Get ég treysti fullkomlega þér? 3. Hvaða hlutfall af heildarfjölda fé verður appreciateable fyrir þig? Vinsamlegast, íhuga þetta og koma aftur til mín eins fljótt og auðið er. Immedaitely Ég staðfesti vilja þínum, mun ég senda þér myndina mína og einnig gefa þér meiri upplýsingar um mig og bankinn þar seint á föður minn vörslu sjóðsins, þannig að þú getur náð í bankanum og staðfesta tilvist sjóðsins og því sjá er að trúa. Ég er að bíða strax svar þitt. Bestu kveðjur ungfrú Sarah Thomas Ég hef grun um að einhverjir telji mig vera að gera grín að þessu en... 23.2.2010Kæra Dagbók!Verst að ég skuli vera hætt að skrifa dagbók, svona alvöru, því ég man aldrei hvað ég gerði í gær.... kannski vegna þess að í mörg ár gat ég treyst á það að ég hefði skrifað það merkilegasta í dagbækur og gæti flett því upp. Ég hef verið að hugsa hvort ég ætti að henda þessum dagbókum, því að nú fer að koma að því að krakkarnir gætu farið að rekast á þær og lesið um hvernig ég var þegar ég var frá 12 ára aldri og þar til bara....ja.... á síðasta ári... vá hvað ég hlýt að eiga margar dagbækur á leynistaðnum mínum! hmm ekki það að ég sé neitt gömul samt... ekki taka þessu þannig.. En allavega. þetta var nú bara útúrdúr sem mér datt í hug sisvona... ég vaknaði óskaplega þreytt í morgun, ekki búin að sofa mikið, las heila bók í gærkveldi ásamt því að sinna tveimur leikjum á facebook.... Þæfði næstum heila tösku í morgun, hálfsvaf yfir glærusýningu um sögu prentlistar... þar sem sýnd var mismunandi leturgerð.. horfði á stuttan þátt um Van Gogh, og þar sem kennarinn var ekki viðstaddur þá máttum við fara að lokinni mynd. svo þá var soldið frjáls tími hjá mér, sem ég ákvað að nota til að lesa betur fyrir prófið... gerði það samt ekki því ég endaði á bloggi á eyjunni um Sigmund Davíð og aðra framámenn í pólitík... ég ætti held ég bara að linka á þetta blogg, því það er merkilegt nokk. ég allavega gat ekki slitið mig frá því... Bloggið. jæja þegar ég gat slitið mig frá því, var ég næstum orðin of sein í blessað prófið, sem ég tók auðvitað með stæl... vona ég..... Heim í ruslakompuna mína, þvoði þvotta knúsaði krakkana, lagaði til, breytti á efri hæðinni aðeins, og skrifaði smá umsögn um "listaverk" sem ég gerði í anda Joris Rademaker, sem er listamaður hér í bæ, og við erum s.s. búin að fara á sýninguna hans, ég reyndar tvisvar.... en það er alveg nóg fyrir mig. ég man hana alveg núna. Verð aðeins að segja ykkur frá skemmtilega föstudagskvöldinu minu... Ísar Leó er búinn að vinna sér inn nokkrar stjörnur með því að sofa alla nóttina í sínu rúmi... ehemm var ég einhversstaðar búin að koma því að, að Dögun Líf er komin í gamla herbergið hans Ísars, og Ísar Leó í herbergið hans Brimars, og hann svo fluttur á neðri hæðina? well ef það hefur komið fram áður, þá bara....emm....bite me. En allavega... Ísar fær alltaf að velja sér sjálfur hvað hann fær fyrir stjörnuna. Núna valdi hann að fara á skauta. Það vildi svo heppilega til að eitthvað símafyrirtæki sem ég versla ekki við, bauð öllum á skauta á föstudagskvöldið, svo ég fór með honum þá. ég ákvað að sleppa því að fara á skauta sjálf og einbeita mér að syninum sem hefur ekki farð á skauta síðan hann "var lítill" eins og hann orðar það sjálfur.... jæja hann er mjög óöruggur til að byrja með, en eftir stutta stund er hann farin að standa sjálfur og kemur sér sjálfur á fætur þegar hann dettur. Við fundum stól á svellinu sem við notuðum svo sem hækju handa honum, og þetta fannst honum æði! LItla stráknum mínum fannst hann svo stór, þegar við komum út úr skautahöllinni og það var allt orðið dimmt, og hann var ennþá úti.... Núna eru allir sofandi nema ég, ég er vakandi... (daaahh) og mikið óskaplega finnst mér notalegt að vita af öllum hérna heilum og hamingjusömum. enginn með áhyggjur, hmm... jaaa... ókey, Máney veit líklega ekki í hvaða föt hún á að fara í fyrramálið, Brimar finnur ekki nesti... en þegar maður veit að þetta eru stærstu áhyggjur barnanna, þá getur maður andað rólega og verið sáttur við lífið og tilveruna. Mikið óskaplega er ég rík kona, og mikið óskaplega er ég heppin að eiga svona fullkomin börn og góðan eiginmann! Mikið óskaplega vona ég að þú áttir þig á því hvað þú ert líka rík! 13.2.2010vikupistillinnHér kemur svo vikupistillinn. Í þessari viku lærði ég að þæfa með silki. Við eigum líka að byrja á einhverri lítilli tösku eða buddu.... ég get sagt að það hafi komið upp umræður um hvernig buddu við ætluðum að gera... ég ákvað svo að gera loðna buddu.... ég get þá bara rakað hana ef mér líst ekki á hana ...jájá misskilja þetta bara.. ég er að gera peningabuddu. Horfði á fína mynd um Halldór Laxness, þar sem var verið að taka viðtöl við hann og fólkið hans. Lærði að lita efni í poka, og núna síðast, að lita svona "tray dyeing" og "tie" dyeing. Svo er líka japönsk aðferð sem ég man aldrei hvað heitir. Ég skora á ykkur að skoða þetta á youtube Ég byrjaði svo að mæta á Bjarg í hinar ýmsustu æfingakúnstir, Það gekk ótrúlega vel, yoga í skólanum á miðvikudögum, svo auðvitað sjúkraþjálfun hjá mínum indæla þjálfara. Ég fór til læknis á þriðjudaginn með mig og Dögun Líf, ég taldi upp allt sem var að henni, og líklega (vonandi) verður gatinu á maganum á henni lokað... Svo var það umræða um lyfin.... svo labbaði ég út. Klukkutíma síðar áttaði ég mig á því að ég gleymdi að tala um aðalástæðuna fyrir því að ég mætti til hans. Ég gleymdi að láta kíkja á hnéð á mér. En hann lét mig á einhver helv lyf, sem hafa gert það að verkum að ég held mér varla vakandi. ég sofnaði kl 9 í gærkveldi og gat varla vaknað hérna rétt fyrir 8 í morgun. Svo var það litun og klipping hjá einum nemanum í VMA, það gekk alveg bærilega hjá honum stráknum! engin mynd samt takk :) Hvað fleira?... Jú Davíð fékk boð frá Keili um að mæta í atvinnuviðtal. Krakkarnir hafa verið mjög hressir. Máney er að blómstra alveg í dansinum og leiklistinni, já og söngnum sem fylgir. Brimar hefur aðeins getað slitið sig frá tölvunni þessa vikuna og hefur verið í fjallinu. Herbergið hans er fullt af wc pappír sem hann átti að selja fyrir áramót fyrir bekkjarferðinni í vor, Hann er ekki mikill sölumaður þessi elska, og ekki ég heldur, enda hefur mér sýnst að það sé ekki nokkur áhugi á að styrkja börn, því að meira að segja afi hans kaupir frekar pappírinn í Bónus. Ég er búin að prjóna einn kjól af þessum skissum sem ég teiknaði, en ég á eftir að sauma hann saman og þvo hann. En mér líst ágætlega á hann. Ég á ekki eftir að ganga í honum því að hann er á mjög granna manneskju... Við Davíð skelltum okkur á Kaffihús í vikunni og endurnærðum sálina aðeins. Það er svo gott að fara svona tvö út og eiga smá samveru án þess að vera hlaupandi á eftir börnum eða svarandi spurninum fram og aftur :) jæja man ekki eftir fleiru í bili.... 29.1.2010Helgar-rómans.Jæja ætli það sé ekki kominn tími á nýtt blogg hérna, og vonandi aðeins hressara. Skólinn hefur gengið tiltölulega snuðrulaust fyrir sig, nema það er lítið um tíma eftir kl 15:00 þá daga sem Ísland er að keppa í snjókasti.... nei handbolta haddna! Þá er manni jafnvel hent útúr stofunni, sem er reyndar næstum því salur, og leikurinn settur upp á tjald fyrir nemendur og kennara. Þeir kennarar sem ekki gefa frí, skipta sér ekki af því þó að þeir sem hafa tölvur, hoppi allt í einu upp í sætunum sínum með hendur á lofti. Dögun Líf labbar hér um allt, en hún er samt ekki farin að standa upp ein og sjálf, heldur þarf að hafa eitthvað til að styðja sig við, eða koma sér af stað. Nú standa yfir smábreytingar hérna, Við erum að flytja unglinginn, (þann eldri sko) niður í herbergi, og bráðum fær litla prinsessan leikherbergi uppi. Ég er búin að átta mig á því að þetta hús hefði mátt vera stærra, þegar allir hafa stór áhugamál, (lesist; frúin sko) En þröngt mega sáttir blabla... Brimar halar inn níunum í skólanum, en á rosalega erfitt með að mæta áður en bjallan hringir.... Máney er að hækka sínar einkunnir mikið og er farin að vera hrifin af skólanum sínum. Hún er að koma heim núna af skautadiskói, alltaf á djamminu skoh... en svo er hún í áhugaverðum tómstundum, því hún er að læra að dansa, og hún er að læra leiklist og söng. Ég veit að hún á eftir að blómstra algjörlega þarna! Ísar..... úfff.....Ísar minn....... Ísar Leó hljóp á móti mér þegar ég kom heim úr skólanum, stoltur á svip og hrópaði: "Mamma mamma ég hjálpaði Bollu út!" (það er kötturinn) "Jáh" sagði ég og það læddist að mér illur grunur... Hvernig hjálpaðir þú henni? ""Ég ýtti henni út um gluggann" sagði hann stoltur... glúbbb "hvaða glugga Ísar minn..... "Gluggann minn uppi" sagði hann að rifna úr stolti" Fyrir neðan gluggann hans liggja reiðhjólin í hrúgu og stétt. Ég átti varla von á að Bollan hefði lifað þetta af, en jú þessir kettir eru ótrúlegir... 3 klst síðar, þegar hún var viss um að skæruliðinn væri sofnaður, kom hún inn. Perla er alveg yndisleg, hún hefur tekið að sér að þrífa gólfið í eldhúsinu án þess að ég bæði hana um það, hún sér lika alveg um andlitið á Dögun Líf, sem er hentugt þar sem hún er endalaust með hor og hósta þessa dagana, Ég stoppaði Perlu reyndar af í dag, þar sem þrifnaðaræðið hjá henni var að fara yfir strikið.... Mér leiðist þegar það er tekið fram fyrir hendurnar á mér, og kúkarassar þrifnir á meðan ég teygi mig eftir þurrku....... Well ég ætla ekki að kyssa hundinn neitt hvort eð er..... s.s. hér er bara blíðan ein, yndislegt veður búið að vera hérna, sólin farin að hækka á lofti, námið yndislegt, fólk frábært...... Ég veit ekki hvort ég hef sagt það nýlega, en ég er ríkasta manneskja í heiminum! Ég er ofsalega stolt af öllum börnunum mínum, manninum mínum og jafnvel dýrunum mínum. Þessa dagana er ég meira að segja svolítið stolt af sjálfri mér í þokkabót! Það gerist nú ekki á hverri öld.. Eigið yndislega helgi og munið að elska hvort annað eins og þið ættuð ekki eftir að sjást á morgun. 23.1.2010Jarðarförin.Ég er búin að vera soldið dofin undanfarið og ekki haft mikinn áhuga á að blaðra, eða blogga... Buttwell life goes on... í gær fékk ég þær hræðilegu fréttir að gamall vinur hefði kvatt þennan heim, og skilið eftir sig konu og 4 börn. hrikalega sorglegt og votta ég aðstandendum samúð mina. Jarðarförin hans Haffa var í dag, hún var óskaplega falleg og látlaus. Ég fór svo og hitti ömmu mína, ég hef ekki hitt hana i ein 3 ár, hún er orðin mikið útúr og ég var vöruð við því af öllum að hún þekkti mig ekki. En þegar ég kom til hennar, og hún spurði hver ég væri, sagði ég að ég héti Díana. Hún ljómaði og sagði: Díana Bryndís? jább það var ég. Kom svo við i Ásbyrgi hjá ættingjunum og spjallaði í smástund. Ég er einhvernvegin andlega búin eftir þennan dag, og ætla að prjóna og horfa á einhverja hrikalega leim stelpumynd sem er verið að sýna á rúv núna. 17.1.2010:'(Elsku elsku frændi. Það er greinilega alveg sama hvað maður undirbýr sig vel, þetta er alltaf jafnvont. Við vorum svo góðir vinir. hlupum saman í sveitinni, hugguðum hvort annað. lágum í grasinu og töldum stjörnurnar... Við reyndum alltaf að standa saman. Eftir að ég flutti svo í bæinn, kynntirðu mig fyrir bæjarlífinu. Þú varst orðinn kunnugur, ekki ég. Ég ákvað að fara aðra leið en þú. Síðan þá höfum við verið að fjarlægjast, Þú valdir þér of erfiðan veg fyrir mig, ég gat ekki fylgt þér eftir. Ég reyndi að sleppa tökunum, hélt mér hefði tekist það.... Það var ekki rétt. Alltaf lifði ég í voninni að þú myndir snúa við blaðinu... Nú er það of seint. Ég vona svo innilega elsku elsku vinur, að þú hafir fundið friðinn og nú líði þér betur. Ég á eftir að ganga í gegnum öll stig sorgarinnar og geri það á minn hátt eins og venjulega, en ég get þó huggað mig við það, að þér hlýtur að líða betur núna. Elska þig. 7.1.2010Fyrsta færsla 2010Well Gleðilegt árið snúllurúllurassarnir mínir Héðan er óskaplega lítið að frétta, Við hjónin höfum verið að dunda við snurfus (eins og mamma hefði orðað það..) hérna í húsinu og búin að komast að því að það þarf eitthvað að þétta öll gler í húsinu. blæs soooldið hérna annað slagið. sosum allt í lagi, ég keypti bara gluggatjöld og hef þau lokuð eins á meðan mesta frostið er. Hvað skal segja... Vinur Davíðs kíkti við á leið sinni austur, milli jóla og nýárs, voða gaman að sjá í hann aftur. Áramótin voru með rólegasta móti, þó gat ég ekki með góðu móti trúað að landið væri að fara til helvítis og allir lægju sveltandi á Íslandi, þegar nálgaðist miðnætti á gamlárs. Það hefði verið hægt að gefa slatta af fólki föt og mat fyrir þenna pening sem brann í loftinu og mengaði loftið. Sko ég Elska flugelda! elska litina, höggið í magann, lyktina... bara allt þetta. En það pirrar mig þetta endalausa væl um að fólk svelti, eigi ekki fyrir Levis gallabuxum lengur og ég veit ekki hvað! og svo springa hér margar milljónir á hálftíma! Well skaupið var dásamlegt. ekki fleiri orð um það. Litlu börnin min voru sofnuð vel fyrir miðnætti, og sváfu af sér alla miðnættisgleðina og hávaðann. en vöknuðu svo eins og venjulega um fjöguleytið bara til að maður fengi nú ekki alveg að sofa eitthvað mikið. Dögun byrjaiði svo á mánudaginn hjá dagmömmunni, en ofsalega varð ég fegin á þriðjudaginn þegar öll börnin fóru á "sína staði" versta var að ég svaf fram yfir hádegi og notaði fríið ekki í neitt nema hvíld. Ég sótti svo mína stundarskrá í gær..... ætlaði nú aldeilis að taka miklu minna og njóta þess að vera í skólanum.... endaði með nýjar 20 einingar... og lem hausnum við vegg í augnablikinu yfir græðginni í mér. Mér finnst þeta bara svo gaman að ég tími ekki að henda neinu út.... En núna er ekkert fjarnám! Skoða bara hvernig mér gengur, ég get þá alltaf sagt mig úr einhverju.... fyrsti dagur í skóla hjá mér í dag, er til rúmlega fjögur á fimmtudögum.... og nú er nóg af bóklegu. 29.12.2009Já Akureyri!Já já og enn snjóar! það eru komin tvö snjóhús í garðinn, en samt nóg efni eftir í svona...emmm... tuttugu í viðbót? plús heilt þorp af íbúum. Það eru búnar að vera gistiskiptingar hérna síðustu daga, Stóru börnin fengu vini/frændfólk, í gistingu, Svo hér var vakað vel frameftir, strákarnir fór í Monopoly, sem er ekki í frásögur færandi nema þegar ég kem niður stigann morguninn eftir, þá stíg ég berfætt á eitt járndraslið sem fylgir og skell á hnén, með Dögun í fanginu. Ég þakka bara fyrir að þeir skildu þetta ekki eftir í efstu tröppunni í stiganum. Well dagurinn fór þó batnandi. Við fórum á sitthvorum bílnum í bíltúr inn í sveit á meðan það var mokað hérna. Fórum í ágætisveðri, en komum heim í dálítilli blindu, byrjað að snjóa á okkur. Um kvöldið fóru svo stóru börnin i gistingu til vina/frændfólks síns. Annars var Brimar alveg á því að sleppa því, honum var svo illt í maganum. En það slapp til og maginn batnaði. Ótrúlegt en satt þá sváfu svo litlu skrípin til hálfellefu í gær!!!!! Perla fékk heimsókn, Lóla hans Víðis kom, og Perla átti mjög bágt með að hemja röddina, hún hafði margt að segja og jafnvel þó ég héldi um munninn á henni, þá bofsaði hún á meðan Dagurinn byrjaði snemma í morgun, kl 7 að staðartíma með góli frá dömunni, sem vakti litla soninn, annars hefði ég getað rotað hana aftur, en þegar herrann er vaknaður, þá þurfa allir aðrir að vakna líka... Hafragrautur og rúsínur í morgunmat, pússlað og litað, Dögun Líf tók aðeins í litina líka og æfði sig smástund, annars var hún svo þreytt að hún var dottin útaf strax um kl 10. Nú sitja þeir feðgar og pússla Cars púsl, á meðan ég blogga og baka smákökur.... sem ég saxa í, með hníf... ég lofa 26.12.2009jólin jólinAðfangadagur rann upp bjart....með ekta snjókomu. Við tókum rúnt með kort og pakka, kíktum á hinn helminginn af fjölskyldunni, þann sem helming sem farinn er á undan okkur hinum, og settum kerti. Ég komst ekki til systur minnar vegna veðurs, hún liggur utan við bæinn. Pabbi kom í mat, pakkar voru opnaðir, allir saddir og sælir með sitt.. ok næstum allir, en svoleiðis er það bara.. Þegar pabbi var farinn, settumst við heiðingjarnir og spiluðum "Hæ Gosa" frameftir kvöldi, eða þar til allt í einu að Máney stóð upp gráföl og stökk inn á baðherbergi. Þar með var hún orðin veik aftur. Jóladagur átti að fara í leti, en endaði í þrifum og tiltektum. Minn ektamaki er ekki týpan til að liggja einhverstaðar í letikasti, hann mokaði slóða allt í kringum húsið svo hægt væri að komast til og frá húsinu. Well það dugði í örfáar klst, þá var allt komið á kaf aftur. Hér hefur snjóað tiltölulega sleitulaust frá aðfangadag, og mér sýnist það ekkert vera að linna. Í dag reif ég mig svo upp, komst að því að ég færi ekkert á mínum fjölskyldubíl, svo ég yrði að taka jeppann. það var ekkert minna. mjakaði mér út af planinu og í Minjasafnskirkjuna þar sem ég hitti fólkið sem ég átti að fara að taka myndir af. Heillandi fólk, falleg athöfn. Ég náði nokkrum góðum myndum (að mér finnst) og þau voru hrifin, þá er markinu náð. Máney orðin hress, Dögun Líf tekin við, Með tvö í gistingu í nótt, ekki gíslingu, Allt í blíðunni héðan úr snjónum. ég er sest með prjónana og er nú ekki að prjóna handa mér, heldur Handprjónasambandinu. Annars hefur safnast svo upp það sem mig langar að prjóna á krakkana að ég sé ekki fram á að geta sinnt heimilinu né skólanum á næstunni... einhverju verður að fórna. Úbbosía ég var ekki búin að kynna ykkur fyrir nýjast meðlimi þessarar fjölskyldu? eða ég man það ekki alveg... En Máney er svo búin að væla um að fá hund, endalaust. Ég gafst upp, (ætlaði samt ekki að kaupa geðveikan tjúa fyrir morfúgu) Ég talaði við Dóru vinkonu mína og hún vissi um stálpaðan hvolp, sem hún svo sendi til mín í flugi. Þessi hvolpur heitir núna Perla, og er collie/ísl. Ég sé reyndar ekki mikið íslenskt í henni. hún er voða collie-leg. óskaplega róleg og er yfir sig sátt við allan snjóinn núna. Hún er eins og höfrungur, kemur upp úr sköflunum annað slagið, en þeir eru stærri en hún Ég er að fara í það á næstunni að taka smá seríu af henni, ég sýni ykkur hana þá. kveðja úr snjóhúsinu að norðan 24.12.2009Gleðileg jól elskurnar mínar.![]() 23.12.2009OHHHHér er búinn að vera verulega óskemmtilegur dagur í dag. við Davíð vöknuðum bæði um fjögurleytið í nótt, bæði orðin veik, Ekki mátti maður við því að missa úr heilan dag í undirbúning fyrir jólin, og hvað þá að leyfa 4 dýrum að ganga laus hérna heima án eftirlits einhverrar pirrukerlingar sem lætur fólk ganga frá eftir sig..... Ég er núna eins og ég sé frekar þunn, en Davíð er enn veikur. Svona er þetta bara..... Ég hef líka verið að spá í af hverju ég sé að halda jól, þegar mín jól voru í gær... Nú halda sum trúarbrögð ekki jól og ég veit ekki til þess að börnin í þeim trúarhópum séu skemmd fyrir lífstíð... Allt er þetta spurning um val. Af hverju, þegar maður er alltaf öðruvisi en aðrir, er maður að reyna að fylgja norminu, jafnvel þó það henti manni ekki?? Ég segi að ég sé að gera þetta fyrir börnin, en ég byrjaði á þessu fyrir þau, og ef ég hefði ekki gert það, væri þeim líklega alveg sama. Alveg eins og þau fylgjast ekki með hátíðum gyðinga eða annara hópa sem koma þeim ekki við.. nei ég er bara að spekúlera..... 22.12.2009Ég er ekki friggja mamma ég er fjörra!Mamma sagði að ég mætti blogga smá.... Ég átti nebblega ammæli og er orðin fjarra! Ég var vaknaður klukkan 6 og fór inn til mömmu til að athuga hvort það væri kominn dagur, hún urraði eitthvað sem ég vissi að þýddi nei... hún hefur urrað svona áður. svo ég lagðist bara hjá henni og við kúrðum lengi lengi, ég spurði bara nokkrum sinnum hvort það væri þá núna kominn dagur... en fór svo bara ofan í rúm til Dögunar systur til að vekja hana og leika við hana. Loksins fór mamma á fætur með mér, en komumst þá að því að amma, (sem kom daginn áður) var löngu vöknuð! Svo að ég fékk að opna pakkann frá henni og Áskeli afa! Það var sko spennó! ![]() Og það var..... ![]() SPIDERMANBÍLL! og hann er með fjarstýru! Þá náði mamma í pakkann frá henni og pabba... ![]() Ó Vá!!!! Dinoco þyrla!!!! ![]() ó ég er svo glaður!!! Hún flýgur svo flott þessi!!! Og hún tekur bíla! ![]() Þá voru fleiri vaknaðir... ![]() Amma aðeins að hjálpa mér.... . Dögun Líf algjör dóni, ![]() Máney stóra systir sem er alltaf góð við mig. Svo tókum við bara rólega stund þar til gestirnir fóru að koma. ![]() Fyrst komu Marinó Þorri og Hákon Orri. ![]() Svo kom Marinó Bjarni. ![]() Við hjálpuðumst öll að við að opna pakkann! Mummi besti vinur, kom svo aðeins seinna, en mamma náði ekki að taka mynd! ![]() Pabbi og mamma bökuðu CARS!!!!! Það fannst öllum strákunum flott. Þeir vildu ekki einu sinni að pabbi skæri kökuna Allt einu fór kakan að hrópa "Ái" og " ekki skera mig!" og allskonar þannig, það fannst okkur alveg rosalega fyndið, svo þegar við bitum í tertuna, þá heyrðist líka í henni ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Það var alveg rosalega gaman að fá strákana af leikskólanum í heimsókn! Mamma lofar að ég megi bjóða þeim heim aftur, þó ég eigi ekki afmæli. Þegar þeir voru farnir, kom Ægir frændi og fullt af fullorðnu fólki í heimsókn. Við Ægir létum okkur bara hverfa inn í ævintýraheim bílanna og flugvéla og ég veit ekki hvað gerðist meir, nema ég var þreyttur og fór svo að sofa. Takk fyrir mig. ![]() 16.12.2009Ég gerði mistök!!!Mikið óskaplega var gott að komast í sjúkraþjálfun aftur eftir þessi veikindi mín núna! Ég er bjartsýn á að þessi sæti gutti eigi eftir að bæta mig eitthvað Við hjónin fórum svo með Dögun Líf í eins árs skoðun í gær, sem fór bara nokkuð vel fram til að byrja með, hún er komin yfir 9 kg og hefur lengst í samræmi við það, öll í meðaltalinu ennþá, sem mér finnst bara fínt mál. Nóg að eiga einn "anorexíu lookalike" Jæja hún býður okkur svínaflensusprautuna fyrir hana, en ég er ekki beint spennt fyrir henni skal ég segja ykkur. Davíð vildi endilega að hún fengi hana og ljósmóðirin líka, svo ég gafst upp. Dögun skyldi fá eins árs sprautuna og svínaflensusprautuna... Well hún er stungin í bæði lærin og stendur sig eins og hetja litla daman, enda auðvitað dóttir móður sinnar! Stuttu síðar er ég að horfa á ljósmóðurina og sé hvað hún fölnar upp þegar hún tekur upp lyfjaglösin sem hún var að sprauta úr, hún hristir þau og verður ótrúlega vandræðaleg. Segir svo " Guð ég gerði mistök!" Ég fékk hnút í magann... "nú?" segi ég... Ég gaf henni þetta óblandað, ég gleymdi að blanda lyfið! og ég fékk sjokk! Hugsanirnar fóru á fullt, Hvað gerist ef maður fær óblandaða svínaflensusprautu??? En hún hafði gefið henni 1 árs sprautuna óblandaða, s.s. hún hafði ekki blandað öll lyfin saman og gefið, heldur bara helming. þannig að það var ekki beint óblandað, heldur.... jamm ekki búið að blanda kokteilinn hehe. Hún þarf þá að mæta aftur eftir mánuð til að fá restina af sprautunni. Ég hefði samt þurft áfallahjálp, því mér er svo eitthvað illa við þessa svínaflensusprautu. Enda er ýmislegt að koma í ljós með þennan svokallaða faraldur. Ég er reyndar búin að lesa að það sé verið að rannsaka hvort að mútur frá lyfjaframleiðendum komi eitthvað við sögu í þessum faraldri.... Þetta er talin til þessa, mildasti faraldur sögunnar, en samt allt þetta írafár... Jæja ég bjó til konfekt í dag, voða gott, og reif allt út úr skápum í eldhúsinu og raðaði upp á nýtt. Við tókum göngutúr um miðbæðinn í dag með litla settið, voða gaman en soldið kalt fyrir mín aumu lungu. Máney tók sólarhrings upp og niður pest sem var greinilega virkilega ógeðsleg, því að litla snúllan mín kjökraði bara... en hún óð í skólann í morgun nennti ekki einu sinni að hafa hækjurnar með, heldur hoppaði og haltraði alla leiðina. hörkustelpa sem ég á þarna.! Jæja sjúkró í fyrramálið og svo í skólann að sækja einkunnir og þ.h. Svo góða nótt elskurnar mínar! 15.12.2009Einkunnir í hús.Allar einkunnir eru komnar í hús. íslenska 7 stærðfræði 8 sjónlist 8 myndlistarsaga 8 myndvefur 9 hönnun og textíll 103 9 fatasaumur 9 htl 101 Staðinn. Mér er mikið létt að hafa staðið alla áfangana sem ég tók á mig þetta haustið! Nú getur maður einbeitt sér að öðru en að ýta á refresh á Innu... Búin að baka 3 sortir af smákökum, halda eitt barnaafmæli og prjóna jólakjól og jólagjöf, Hvað er það aftur fleira sem maður þarf að gera fyrir jólin? og af hverju eru allir stressaðir???? Ég hef aldrei skilið þetta stress, en alltaf hafa jólin komið.... Eigið góðar stundir elskurnar mínar og passið upp á hjartatuðruna í ykkur. 13.12.2009Ammiillii!!!Jæja fyrsti afmælisdagurinn afstaðinn og hann var tekinn í rólegheitunum af afmælisbarninu. Enginn vissi af henni. En Davíð og Ísar bökuðu pizzur fyrir gestina. ![]() Og Ísar sá um að hringja í fólk..... Síðan var daman klædd í föt.. ![]() Af stóru diddu.... "ég vil líka vera stóór!" ![]() Jæja af því að maður er nývaknaður,þá er gott að fá sér smá göngu til að hressa sig fyrir partýið.. ![]() Alltaf hægt að treysta á stóru systkinin til að hjálpa manni.. ![]() Víðir og Linda komu... ![]() Og Ægir frændi. Afi kom líka.. og Jónína amma kom, en hún var að vinna svo lengi í gær... En allt gekk þetta vel og allir voru glaðir, Ísar og Ægir eru endalausir prakkarar saman og það endaði með að Ísar Leó vaknaði í morgun með kartöflu í skónum sínum.... Ekki hamingjusamt barn það.. henti henni út á stétt og þar með hafði hann ekki fengið neina.... Takk öll fyrir komuna! kveðja mamma og Dögun Líf. 12.12.2009Fyrir ári....![]() Fyrir ári síðan fæddist þessi litla prinsessa. Ég ætlaði bara rétt í smáskoðun hjá lækninum á FSA, en endað í bráðakeisara bara. En eftir að hafa verið mér erfið á meðgöngu, hefur hún greiniega skammast sín, því að hún hefur verið algjör engill síðan hún fæddist :) Set kannski inn færslu í kvöld með myndum... Góðar stundir 21.9.2009Skoða nánar27.5.2009Skoða nánar |
Vafraðu umFlettingar í dag: 7 Gestir í dag: 4 Flettingar í gær: 52 Gestir í gær: 9 Samtals flettingar: 22653 Samtals gestir: 8563 Tölur uppfærðar: 19.3.2010 14:02:38 An Ye Harm None, Do What Ye Wilt Nafn: Frú DíanaTölvupóstfang: dadessa@simnet.isMSN netfang: Diana.Hermanns@gmail.comAfmælisdagur: 13. maíÖnnur vefsíða: www.diana.blog.isUm: Ég er stór kona í litlum líkama. Hef ekkert við stærri að gera. Get allt sem ég vil, ef ég get það ekki.. þá er það vegna þess að ég vil það ekki.Tenglar
Eldra efni |